Gleðilegt nýtt ár 2009!
Gleðilegt nýtt ár og þakka ykkur öllum fyrir ánægjulegar stundir á liðnum árum! Látum nýja árið verða jafn gott ef ekki bara betra!

bla bla bla
Gleðilegt nýtt ár og þakka ykkur öllum fyrir ánægjulegar stundir á liðnum árum! Látum nýja árið verða jafn gott ef ekki bara betra!

Ég sendi engin jólakort í ár, fann mér ekki tíma til að föndra eitthvað fallegt. Ég kem jólakveðjunni því bara á framfæri hér.
Gleðileg jól allir saman og hafið það nú rosalega gott yfir hátíðirnar!

Þetta hefur bara ekki gerst lengi, tvö albúm komin inn á þremur dögum
Ég var s.s. að bæta febrúar inn
Gaman frá því að segja að núna eru komin tvö ár af myndum inná síðuna.
Vá hvað tíminn líður, mér finnst bara alltaf vera helgi (ég kvarta svo sem ekkert yfir því). Það verður bara komið sumar aftur áður en við vitum af. Ég ætla nú samt að njóta vetursins fyrst og þess sem honum fylgir, jólin, snjórinn, afmælið mitt o.fl. skemmtilegt ![]()
Þar sem flestir eru í prófum núna og þar af leiðandi fáir til að leika við þá lét ég loksins verða að því að setja inn nýtt myndaalbúm
Og já vá, ég er komin 10 mánuðum á eftir með myndirnar, verð að fara að spýta í lófana og ná þessu niður í svona 4-5 mánuði aftur.
Ég ákvað að vera góð við sjálfa mig í dag og gaf mér útskriftagjöf, ætlaði að vera löngu búin að kaupa hana en var alltaf uppseld, sá síðan mér til mikillar hamingju að hún var komin aftur í dag. Þannig var það að í haust þá hringdi mamma í mig og sagðist hafa fundið pening í buddu uppí skáp og spurði mig hvort það gæti verið að ég ætti hann. Ég kannaðist nú ekki við það en síðan rámaði mömmu eitthvað í að ég hafi sett peninginn sem ég var að safna fyrir útskriftaferðinni þarna upp og þá mundi ég það. Ég hafði s.s. ákveðið að geyma þennan pening (36þús krónur) á mjög góðum stað og kaupa síðan dollara fyrir hann áður en ég færi til Mexico. Auðvitað steingleymdi ég síðan að ég ætti þennan pening. Þegar peningurinn fannst ákvað ég að ég yrði að kaupa eitthvað skemmtilegt fyrir hann þar sem ég hafði ekki einu sinni vitað að ég ætti peninginn svo að þetta var í raun bara gróði. Það sem varð fyrir valinu var þriggja laga Cintamani anorrakkur (Tinna)

Jæja, ég ætla að fara að sofa, vonandi njótið þið myndanna
Jæja, þá er ég búin að setja inn allar myndir frá árinu 2007. Var að henda inn tæplega 500 stk
Sumarið hefur ekki farið í blogg á þessum bæ, kannski ég verði duglegri í vetur, lofa samt engu. Í sumar er ég búin að fara til Mexico með stuttri viðkomu í Orlando og New York. Þetta var útskriftarferð, vorum rétt rúmlega 20 krakkar úr verkfræðinni sem skelltum okkur saman, rosalega skemmtileg ferð. Í mexico fór ég að kafa, snorkla, á sportbát (tveggja manna jet-ski með utanborðsmótor), skoðuðum tvær eyjur og pýramýdana í chitzen itza að ógleymdu öllu djamminu. Við vorum á All-Inclusive hóteli sem þýddi að við gátum borðað og drukkið eins mikið og við vildum þegar við vildum, það var algjör snilld, varð til þess að yfirleitt fór allavega hluti af hópnum saman út að borða (á hótelinu, voru margir veitingastaðir þar, og auðvitað allt innifalið á þeim öllum) og síðan var byrjað að sötra á einum af hótel börunum áður en haldið var niður í bæ ef það var yfir höfuð gert, sum kvöld skemmtum við okkur bara allt kvöldið á hótelinu, t.d. á kareokee barnum.
Í sumar er ég einnig búin að fara á hórukassanum (húsbíll sem við fengum lánaðan) í háskólaútileguna í Hallgeirsey, með tjaldvagninn í Þakgil, djammferð til Akureyrar, á Þjóðhátíð, nokkrar ferðir í Birnukot og hef slappað helling af í Heiðarási. Síðan kleif ég nokkur fjöll, þá sérstaklega fyrri hluta sumars, þá tók ég Esjuna vikulega 3 vikur í röð, Vífilsfell, Búrfell, Eyrafjall og núna síðast dró ég Lindu, Magga og Halldóru með mér yfir Esjuna eftir vinnu einn daginn í sumar, enduðum í grilli í Heiðarási rétt fyrir miðnætti.
Fyrir þau ykkur sem ekki vissuð þá kláraði ég verkfræðina í vor (B.Sc.) og er núna að vinna í úrbótastjórnun hjá Actavis.
Ég held að ég láti þetta duga í bili, þarf að fara að koma mér í háttinn. Góða nótt!
Núna er heldur betur langt síðan ég skrifaði eitthvað inn hérna síðast og fullt búið að gerast síðan þá. Ég er orðin árinu eldri og að verða búin með háskólanám (í bili allavega). Núna er ég á lokasprettinum að klára þriggja vikna áfanga í ákvarðanatökuaðferðum, hann klárast með prófi á miðvikudaginn í næstu viku, síðasta prófið mitt í HR
Ég er búin að fá út úr öllum hinum prófunum og gekk það bara mjög vel.
Núna er farið að styttast í Mexico en árgangurinn ætlar þangað í útskriftaferð, förum 30. maí með millilendingu í Orlando í eina nótt. Komum síðan heim 12. júní eftir hálfs sólarhrings stopp í New York. Þetta verður rosa stuð! Útskriftin er síðan tveimur dögum eftir heimkomu eða 14. júní.
Jæja, nóg af fréttum í bili, endilega kíkið á myndasíðuna, ég var að setja inn fullt af “nýjum” myndum síðan í haust. Nóg af djammmyndum; bekkjarpartý, staffadjamm, Akureyrarferð, Októberfest, próflokadjamm og jólahlaðborð
Þá er Ítalíuferðin afstaðin og kominn tími á smá ferðasögu. Ég er að spá í að hafa ferðasöguna meira í formi mynda og kannski smá texta með.

Ferðafélagarnir komnir í háloftin og stefnan tekin á Verona á Ítalíu.

Við fengum sæti fyrir framan neyðarútgang svo að plássið sem við fengum var mjög lítið og ekki hægt að halla sætunum. Ég var eitthvað búin að vera að kvarta yfir þessu og þá bara minnkaði plássið enn meira því konan fyrir framan min þurfti endilega að halla sætinu sínu bara næstum því á mig.

Þarna vorum við farnar að nálgast áfangastað og sjá snjóinn í ölpunum.
Fyrsta daginn gerðum við lítið annað en að tjékka okkur inná hótelið, fá okkur kvöldmat og leika beljur á svelli. Morguninn eftir var síðan haldið í fjöllin í kynningarferð með íslenska hópnum, til að læra að rata um svæðið og renna okkur á milli svæða.


Strax á fyrsta degi eignuðumst við fjölskyldu: f.v. Guðrún, Brynjar, ég og Arnar.

Eftir fyrsta daginn ákváðum við að fjárfesta í hjálmum og varð það það eina sem við keyptum í þessari ferð sem var ekki matarkyns. Á þessari mynd sjáiði líka hvað var æðislegt veður hjá okkur, maður átti bara erfitt með að opna augun almennilega.

Auðvitað voru síðan reglulega teknar bjórpásur og ef vel lá á þá var jafnvel keyptur Grappi líka.

Þetta er hann Maggi, hann settist hjá okkur þegar við vorum úti að borða og sagðist vera afi minn. Sagði að ég hefði loksins fundið afa minn þegar ég kom til Ítalíu. Mjög hress náungi, minnir að hann sé 74 ára og hann fer einn til Madonna á skíði á hverju ári, hefur gert það síðan 1991 minnir mig. Hann var sko aðaltöffarinn á svæðinu og vildi ólmur komast á öll diskó-in í bænum, var ekkert að fýla bara chill á barnum.

Þetta eru ítölsku vinir okkar sem við kynntumst eitt kvöldið. Emiliano og Ervin. Þrátt fyrir takmarkaða enskukunnáttu reyndu þeir ólmir að leiða okkur og kyssa og fylgdu okkur meira að segja heim um nóttina, og annar reyndi án árangurs að bjóða Birnu á date daginn eftir.

Við með jarðaberjastaup sem ítalirnir gáfu okkur.

Orðnar rjóðar í kinnum eftir sólina.

Við horfðum á Ísland vs. Þýskaland á þýsku sjónvarpstöðinni á hótelinu. Það var reyndar ekkert hljóð á þeirri stöð svo að við lýstum leiknum bara sjálfar og fögnðum ákaft þegar Ísland skoraði.

…en Ísland tapaði og Birna fór í fýlu.

Eitt kvöldið fórum við með íslenska hópnum í svona snjóbíla og keyrðum uppí fjall þar sem við fengum steinasteik og fleira.

Þarna erum við að grilla matinn okkar. Við vorum rúmlega 40 manna hópur, allir með steina fyrir framan sig sem eru hitaðir upp í 500°C og það mátti ekki opna glugga því þá myndu steinarnir kólna svo fljótt. Þið getið ímyndað ykkur hvað var orðið heitt þarna inni.

Eftir steinasteikin fór fjölskyldufólkið heim á hótel en restin af fólkinu fór á barinn. Þar var bjór og grappi keyptur í metratali og er ég viss um að buddur sumra hafa verið mun léttari daginn eftir. Þarna er Nonni fararstjóri t.d. orðinn mjög hress.

….og Gerða konan hans ekki síður hress.

Einn daginn skelltum við okkur í fjórhjólaferð. Við Birna vorum þær einu sem skráðu sig en við ákváðum að leyfa Arnari og Brynjari að sitja aftan á hjá okkur því þeir máttu ekki fara einir, eru ekki með bílpróf. Síðan leyfðum við þeim nú að keyra líka, þeir máttu bara ekki vera skráðir fyrir hjólunum. Við fórum því bara á 3 hjólum í þessa ferð, við fjögur á tveimur hjólum og síðan Evert fararstjóri og dóttir hans á einu. Ánægjan með fjórhjólaferðina leynir sér ekki á svipnum á Birnu á þessari mynd.

Við hittum þetta par frá Noregi og urðum bara að fá að taka mynd af þeim. Þau voru ekkert smá svöl, um fimmtugt, í eins göllum og brunandi niður brekkurnar á snjóbrettum.


Við tókum smá flippkast í sólinni þar sem við reyndum líka að vera svalar.

Við tókum mynd síðasta daginn af allri fjölskyldunni okkar, s.s. mamman og pabbinn með börnin sín 6 (vantar okkur á myndina).

Ein mynd af bjór og sítrónu grappa í fjöllunum.

Við fórum á kostum á skautasvelli bæjarins.

…og Birna vann fullt af bikurum.
Að lokum kemur smá myndasería af Birnu síðasta daginn:




Þá erum við Birna alveg að leggja í hann í brettaferðina til Ítalíu. Ég ætla að fara að sofa núna en síðan leggjum við af stað eftir rúmlega 5 klst. Ég er aftur hætt við að taka tölvuna með mér út svo að ég býst ekki við að blogga neitt fyrr en ég kem heim. En þið getið samt ennþá fylgst með veðurspánni hjá okkur hér að ofan ef þið hafið áhuga á því
Sjáumst eftir viku…
Árið 2008 hefur bara byrjað mjög vel, skólinn byrjaður aftur og snjórinn kominn
Við skelltum okkur nokkur norður til Lindu og Ernu um helgina. Við ákváðum að taka flugið og styrktum því leigubílana á Akureyri vel meðan á dvöl okkar þar stóð. Á Akureyri var margt gert m.a. farið í Hlíðarfjall, sund, út að borða, á djammið, spilað og horft á video. Ég kíkti líka aðeins í heimsókn til Tryggva frænda. Nýja snjóbrettið var prófað í fyrsta sinn og stóð algjörlega undir væntingum, mjög sátt
Núna er það síðan bara skóli þessa vikuna og síðan förum við Birna til Ítalíu á laugardaginn
Við erum s.s. að fara í brettaferð til Madonna di Campiglio og verðum í viku. Ég ákvað að skella inn veðurspá hér fyrir ofan fyrir ykkur sem hafið áhuga á að sjá veðrið sem við verðum í á Ítalíu, hvort við séum nokkuð að fara að týnast í þoku
Eins og þið sjáið þá bætir væntanlega vel í snjóinn í vikunni og síðan kemur sólin um leið og við mætum á svæðið
Powered by WordPress